Fréttir

Fjörtíu listamenn í Ferskum vindum í Garði
Bjarni Sigurbjörnsson málari er að skapa þetta listaverk í íþróttamiðstöðinni í Garði.
Fimmtudagur 4. janúar 2018 kl. 11:18

Fjörtíu listamenn í Ferskum vindum í Garði

Í sveitarfélaginu Garði eru sem stendur fjörtíu listamenn af tuttugu og einu þjóðerni, þátttakendur í alþjóðlegu listahátíðinni Ferskir vindar.
Hátíðin fer nú fram í fimmta skiptið og er mikill listaandi yfir bænum sem stendur. Opnunarhátíð verður laugardaginn 6. janúar nk. kl. 14, að Sunnubraut 4 í Garði í sýningarsal bæjarskrifstofu. Þema hátíðarinnar er Draumar.

Að hátíðinni, eins og fyrri hátíðum, stendur Mireya Samper, listrænn stjórnandi og eigandi Ferskra vinda, í samstarfi við Sveitarfélagið Garð og fjölda styrktaraðila.
Í hópnum eru fimm íslenskir listamenn en þau eru Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari, Bjarni Sigurbjörnsson málari, Ragnheiður Guðmundsdóttir þráðlistakona (textíl), Arna Valsdóttir kvikmyndalistakona (video) og Hrafn A. Harðarson ljóðskáld og íbúi í Garði. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Listamennirnir verða um allan bæ að skapa listaverk sín sem verða svo hluti af sýningu hátíðarinnar, en sum þeirra munu væntanlega standa um ókomna tíð í Garði, en fjöldi listaverka frá fyrri hátíðum Ferskra vinda skreyta nú Sveitarfélagið Garð og fjölgar þeim væntanlega enn á þessari hátíð.
Boðið verður upp á rútuferðir helgarnar 6. og 7. og 13. og 14. janúar á milli listaverka og sýninga hátíðarinnar, þar sem listamenn taka á móti gestum og segja frá verkum sínum.
Listunnendur og allir þeir sem aðhyllast hugmyndaríki, sköpun og opinn huga eru hvattir til að koma og fylgjast með, taka þátt og njóta skemmtilegs viðburðar.