Fjórtán spila golf í Finnlandi
Vinabæjamót í íþróttum fer fram í 39. sinn nú í ár og að þessu sinni verður keppt í golfi í Kerava í Finnlandi 25. júní. Undirbúningur er hafinn hjá Reykjanesbæ og er stefnt að því að sjö stúlkur og sjö drengir á aldrinum 14 –16 ára frá Golfklúbbi Suðurnesja taki þátt í mótinu. Undirbúningur hjá GS hófst síðasta haust.
Gunnar Þórarinsson og Anna Pála Magnúsdóttir verða fulltrúar íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar á mótinu.