Fjórir Vogabúar útskrifast frá Háskóla Íslands sama daginn
Háskóli Íslands brautskráði 505 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi föstudaginn 17. febrúar 2023. Útskriftin vakti athygli í Sveitarfélaginu Vogum og var til umfjöllunar á vef sveitarfélagsins. Þó það sé sannarlega ekki óvanalegt að einstaklingar úr Vogunum útskrifist úr háskólum þá hlýtur það að vera óvenjulegt, ef ekki einstakt að fjórir Vogabúar útskrifist saman daginn úr sama háskóla.
Vogabúarnir í útskriftarhópnum voru þau Arnar Egill Hilmarsson sem útskrifaðist með BS-próf í hagfræði, Petra Rut Rúnarsdóttir sem útskrifaðist með MS-próf í verkefnastjórnun, Hanna Stefanía Björnsdóttir útskrifaðist með BA-próf í félagsráðgjöf og Sindri Jens Freysson með BS-próf í tæknifræði.