Fréttir

Fjórir vilja byggja þjónustumiðstöð á Reykjanesi
Reykjanesviti. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 8. mars 2016 kl. 10:14

Fjórir vilja byggja þjónustumiðstöð á Reykjanesi

Fjórar umsóknir bárust um lóð fyrir ferðaþjónustu við Reykjanesvita. Á dögunum var auglýst eftir áhugasömum aðilum til að reisa og reka þjónustumiðstöð við Reykjanesvita í kjölfar síðasta fundar stjórnar Reykjanes Geopark.

Formanni Reykjanes Geopark, verkefnastjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar hefur verið falið að ræða við umsækjendur í þessari viku.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024