Fjórir teknir fyrir umferðalagabrot
Fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna umferðalagabrota í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærdag. Þrír þeirra voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og einn ökumaður bifhjóls vegna stöðvunarskyldubrots. Hraði þeirra sem var stöðvaður var 116 km og 137 km þar sem hámarkshraði er 90 km/klst og 58 km þar sem hámarkshraði er 30 km/klst.
Þá varð harður árekstur á Reykjanesbraut skammt frá Flugvallarvegi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bifreið ekið aftan á aðra bifreið sem hafði hægt á sér. Báðar bifreiðarnar voru óökufærar eftir óhappið og voru dregnar burt með kranabifreið.
VF-mynd úr safni