Fjórir ölvaðir og tveir dópaðir í umferðinni
Fjórir stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Þá voru tveir kærðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Átta voru stöðvaðir vegna hraðaksturs. Þar af sex á Reykjanesbraut og tveir á Grindavíkurvegi. Sá sem hraðast fór var mældur á Reykjanesbraut á 148 km þar sem hámarkshraði er 90 km.