Fréttir

Fjórir í fíkniefnaakstri
Föstudagur 10. janúar 2014 kl. 12:10

Fjórir í fíkniefnaakstri

Tveir ökumenn voru handteknir í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra, rúmlega þrítugur karlmaður, játaði neyslu á kannabis. Hinn, karlmaður á fertugsaldri,  reyndist hafa neytt amfetamíns, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Hann ók einnig sviptur ökuréttindum.

Í fyrrinótt voru tveir ökumenn handteknir af sömu sökum. Annar þeirra, kona um þrítugt, hafði neytt amfetamíns og ópíumefnis, samkvæmt niðurstöðu sýnatöku á lögreglustöð. Hinn, rúmlega tvítug kona, játaði neyslu á kannabis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024