Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Fjórir fulltrúar tilnefndir í samráðsvettvang ríkisins og Grindavíkurbæjar
Föstudagur 17. júlí 2026 kl. 05:37

Fjórir fulltrúar tilnefndir í samráðsvettvang ríkisins og Grindavíkurbæjar

Bæjarráð Grindavíkur kom saman til fundar og samþykkti samhljóða að taka fyrir erindi frá forsætisráðuneytinu með afbrigðum. Ráðuneytið óskaði eftir því að Grindavíkurbær tilnefndi fjóra fulltrúa, auk varamanna, í nýjan samráðsvettvang stjórnvalda og bæjarfélagsins.

Eftirfarandi fulltrúar voru tilnefndir til að sitja í samráðsvettvangnum fyrir hönd Grindavíkurbæjar:

Pétur G. Markan, bæjarstjóri

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar

Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður bæjarráðs

Magnús Már Jakobsson, bæjarfulltrúi

Til vara voru þeir Hjálmar Hallgrímsson og Þorleifur Ólafsson, bæjarfulltrúar, tilnefndir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn