Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjórir á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut í nótt
Sunnudagur 23. nóvember 2003 kl. 08:13

Fjórir á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut í nótt

Alvarlegt umferðarslys varð á Strandarheiði á Reykjanesbraut á sjöunda tímanum í morgun. Tilkynnt var um slysið kl. 06:37. Tvær bifreiðar lentu í hörðum árekstri þegar þeim var ekið framan á hvora aðra. Svo virðist sem önnur bifreiðin hafi farið yfir á öfugan vegarhelming. Fjórir voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. Þrír útlendingar voru í öðrum bílnum en Íslendingur í hinum. Ekki er hægt á þessari stundu að segja hversu alvarleg meiðsl eru. Einn hinna slösuðu var án meðvitundar þegar tilkynnt var um slysið, en var kominn til meðvitundar að nýju áður en tókst að losa hann úr bílflakinu.

Fimm sjúkrabifreiðar og tveir tækjabílar slökkviliðs voru sendir á staðinn, auk alls tiltæks lögregluliðs. Þrjár sjúkrabifreiðar komu frá Brunavörnum Suðurnesja, einn sjúkrabíll úr Grindavík og annar úr Hafnarfirði. Þá fór tækjabíll með klippur úr Keflavík og einnig tækjabifreið úr Hafnarfirði.

Talsverðan tíma tók að ná ökumanni annarrar bifreiðarinnar úr bílflakinu, en beita þurfti klippum á bílinn.

Talsverður vindur var á slysstað og mikil rigning. Þarna standa yfir framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar og eru háir moldarhólar í vegarkantinum. Sviptivindar myndast við hólana og staðfesti lögreglumaður á vettvangi að lögreglan hafi fundið fyrir sviptivindunum skömmu áður. Lögreglubifreið var staðsett skammt frá slysstað þegar tilkynnt var um umferðarslysið.

Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á slysstað í nótt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024