Fjórhjólaslys á Suðurstrandavegi
Ökumaður fjórhjóls missti vald á ökutæki sínu á Suðurstrandarvegi norðan við Ísólfsskála í gær og hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn meiddist talsvert og hlaut m.a. brot á ökkla. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Landsspítalann í Fossvogi.
Einn ökumaður var stöðvarður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gær og þá var annar stöðvaður við Voga grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Einn ökumaður var stöðvarður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gær og þá var annar stöðvaður við Voga grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.