HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 7. september 2001 kl. 12:23

Fjórar kennslustofur næsta haust

Framkvæmdir við grunnskólann í Sandgerði ganga vel. Fyrsti hluti byggingarinnar verður tekinn í notkun á næstunni en það er stækkun á andyri íþróttamiðstöðvarinnar og grunnskólans og tengibygging milli tveggja álma skólans. Að sögn Guðjóns Þ. Kristjánssonar , skólatjóra kemur nýja byggingin til með að breyta miklu í vinnuaðstöðu kennara og auka rými í skólanum. „Megin byggingin verður tekin í notkun næsta haust og þá bætast við fjórar kennslustofur. Skólinn er einsetinn núna en enn vantar náttúrufræðistofu og teiknistofu“, segir Guðjón. Nemendur í grunnskólanum eru 269 og hefur fækkað síðan í fyrra. „Helsta skýringin á þessari fækkun er sú að við útskrifuðum ríflega 30 nemendur en einungis 16 hófu nám í fyrsta bekk í haust.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn