Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjórar F15C og eldsneytisvél í loftrýmisgæslu
Mánudagur 4. apríl 2016 kl. 13:48

Fjórar F15C og eldsneytisvél í loftrýmisgæslu

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju í dag með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Flugsveitin kemur frá Air National Guard í  Westfield, Massachusetts.

Alls munu um 150 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kom til landsins síðdegis í gær með fjórar F-15C orrustuþotur og KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 5. - 7. apríl.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok apríl. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, segir í frétt Landhelgisgæslunnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024