Bygg
Bygg

Fréttir

Fjör í rennibrautinni við Holtaskóla
Miðvikudagur 17. nóvember 2004 kl. 18:16

Fjör í rennibrautinni við Holtaskóla

Kátt var á hjalla hjá börnunum í Holtaskóla í dag enda var kennsla komin í eðlilegt horf og brekkan fyrir ofan skóla snævi þakin.

Krakkarnir gerðu sér að leik að renna sér niður brekkuna og hafði myndast ís-rennibraut þar sem allir sleðar eða þess konar hjálpargræjur voru óþarfar. Þau húrruðu þar niður í löngum halarófum og skein bros af nær hverju andliti þrátt fyrir kuldann.

Vert er þó að benda ökumönnum sem eiga leið um Skólaveg á að fara varlega framhjá hólnum því starfsmenn skólans höfðu áhyggjur af því að ef einhver missti stjórn á bíl sínum væri hætta á að hann færi beint yfir þetta leiksvæði.

 

 

 

 

 

 

VF-myndir/Þorgils Jónsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn