Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita hefst í næstu viku
Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge 2004, hefst á mánudag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að æfingin sé nú haldin í þriðja sinn og sé sú umfangsmesta hingað til. Sérstök áhersla verði lögð á siglinga- og hafnarvernd en nýlega hafi verið samþykkt lög um siglingavernd á Íslandi vegna alþjóðlegra krafna um öryggi skipa, hafna og farmsendinga milli landa.
„ Í þeim tilgangi verða prófaðar aðferðir og tækni til að bregðast við hryðjuverkasprengingum í höfnum og um borð í skipum. Einnig verða æfð viðbrögð við sprengjum á flugvöllum,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.
Að minnsta kosti 130 viðfangsefni verða sett á svið fyrir sprengjusérfræðingana til að bregðast við. Þá munu sjö erlendar sprengjueyðingarsveitir taka þátt í æfingunni en þær eru frá Danmörku, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Allar sveitirnar hafa sprengjueyðingu að aðalstarfi og hafa flestar þeirra starfað á átakasvæðum, m.a. í Írak, Afganistan, á Balkanskaga og á Norður Írlandi auk þess að sjá um viðbrögð við hryðjuverkum í sínu heimalandi, að því er segir ennfremur í tilkynningunni.
Gott samstarf við Varnarliðið, lögreglu og öryggisfulltrúa á Keflavíkurflugvelli er nauðsynlegt svo að æfingin heppnist vel, en örg sviðsettu viðfangsefnin eiga sér stað á Keflavíkurflugvelli og í höfnum á Reykjanesi.
„ Sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar sér lögum samkvæmt um sprengjueyðingu á Íslandi og sér einnig alfarið um sprengjueyðingu fyrir Varnarliðið. Að mati sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar er mjög mikilvægt að halda slíkar æfingar til að viðhalda þekkingu og þjálfun og fylgjast með nýjustu tækni á þessu sviði.“
Æfingin stendur til 3. september næstkomandi, en Landhelgisgæslan stendur fyrir æfingunni í samvinnu við Varnarliðið.
Morgunblaðið á Netinu greinir frá þessu í dag.