Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Miðvikudagur 30. ágúst 2000 kl. 13:20

Fjölskylduhátíð á Ljósanótt

Ljósanótt verður haldin hátíðlega í Reykjanesbæ nk. laugardag. Mikið verður um dýrðir og munu verslanir, söfn, gallerí og veitingastaðir verða með ýmis tilboð í gangi í tilefni dagsins en dagskráin hefst kl.14, eins og fram kemur annars staðar í VF í dag. Kveikt verður á ljósunum á Berginu kl. 22 og flugeldasýning í kjölfarið. Bæjarbúum gefst síðan kostur á að sigla meðfram Berginu og skoða herlegheitin. Drög að dagskrá Ljósanætur litu fyrst dagsins ljós fyrir rúmri viku síðan og hefur undirbúningsnefnd á vegum Markaðs- og atvinnuráðs, skipuð Steinþóri Jónssyni, Guðbjörgu Glóð Logadóttur Johanni D. Jónssyni, lagt nótt við nýtan dag til að dagskráin verði sem fjölbreytilegust og höfði til allra aldurshópa. „Við gætum vissulega gert enn betur ef tíminn hefði verið lengri, en áhugi fyrirtækja og bæjarbúa á þátttöku var ótrúlegur og með þeirra hjálp er Ljósanótt orðin að veruleika“, segir Steinþór. Lýsing Bergsins hafði mun lengri meðgöngutíma en undirbúningur Ljósanætur. Árið 1998 fékk Steinþór þá hugmynd að lýsa upp Bergið en á síðustu mánuðum hefur Markaðs- og atvinnuráð Reykjanesbæjar haft umsjón með framkvæmdinni í samvinnu við Reykjanesbæ, Hitaveitu Suðurnesja, Menningarborg Reykjavík 2000, Hafnarsamlag Suðurnesja auk rúmlega tuttugu fyrirtækja í Reykjanesbæ sem hafa fjármagnað verkefnið að langstærstum hluta. Steinþór Jónsson, formaður undirbúningsnefndar, segir að hugmyndin hafi verið að gera umhverfislistaverk sem myndi bæta ímynd bæjarins. „Mig langaði til að fá bæjarbúa til að meta það sem er fallegt í bænum, staði eins og Bergið. Málið var sent til G.H. heildverslunar í Garðabæ sem sendi hugmyndina áfram til iGuzzini á Ítalíu. Ítalirnir gerðu tölvumynd af lýsingunni og málið var síðan tekið fyrir í bæjarráði í sumar. Bæjarráð samþykkti að styrkja verkefnið en heildarkostnaður vegna lýsingarinnar og Ljósanætur er um 5 milljónir króna. Fyrirtæki og einstaklingar hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga og okkur hefur því tekist að safna fyrir kostnaðinum“, segir Steinþór. Aðalverktaki á uppsetningu lampanna er Nesraf og undirverktaki Steinsteypusögun S.H., sá um lagningu strengsins á Berginu. „Sem dæmi má nefna voru festingarnar fyrir lampana endurhannaðar af Hjörleifi Stefánssyni í Nesraf, þannig að allt viðhald og umgengni er til sóma“, segir Steinþór.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024