Fjölskyldudögum í Vogum frestað
Sveitarfélagið Vogar hefur ákveðið að fresta Fjölskyldudögum í ár vegna samkomutakmarkana. Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að flugeldasýning verði 11. september kl. 23.00 og íbúar hvattir til að vera úti við og njóta hennar en virða fjarlægðartakmörk.
„Það er okkar trú að við hljótum að geta komið tvíefld til baka að ári og haldið frábæra skemmtun,“ segir að lokum í tilkynningunni.