Bygg
Bygg

Fréttir

Fjölnota knattspyrnuhús vígt í Grindavík
Laugardagur 28. mars 2009 kl. 13:37

Fjölnota knattspyrnuhús vígt í Grindavík

Nýtt fjölnota knattspyrnuhús sem fengið hefur nafnið Hópið - var formlega tekið í notkun í dag í Grindavík. Sigfús B. Ingvason, prestur og knattspyrnuáhugamaður úr Keflavík blessaði húsið og sparkaði síðan bolta upp í loftið við fögnuð heimamanna úr Grindavík en forseti bæjarstjórnar, Garðar Páll Vignisson tók vígsluspark á vítalínunni sem hann skoraði örugglega úr enda enginn í markinu.
Fjölnota knattspyrnuhúsið var tekið í notkun haustið 2008 en formlega vígsla var í dag. Það er 50 x 70 metra stálgrindarhús með nýjustu kynslóð gervigrass og 60 metra hlaupabraut. Byggingafyrirtækið Grindin úr Grindavík byggði húsið og afhenti fulltrúi fyrirtækisins forseta bæjarstjórnar lyklavöldin sem síðan kynnti nafn hússins.
Við vígsluna í dag sýndu ungir  knattspyrnumenn snilli sína en auk þeirra stangveiðimenn, kylfingar og eldri borgarar, með fluguköstum, golfhöggum og leikfimisæfingum.
Eysteinn Húni Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur var auðvitað í skýjunum við þessi tímamót og sagði að tilkoma nýja hússins væri bylting fyrir knattspyrnufólk í bæjarfélaginu. Mikill knattspyrnuáhugi er í bænum og tugir ungra krakka eru á æfingum hjá UMFG. Fleiri aðilar sem hafa notað húsið og eru ánægðir, meðal annars stangveiðimenn en þeir hafa æft fluguköstin af kappi í vetur á gerfigrasinu og í hlýjunni innan veggja nýja hússins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Garðar Páll Vignisson, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur tók vígslusparkið á vítapunktinum og beint í autt markið. 1:0 fyrir Grindavík!

Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar UMFG tók við boltum að gjöf frá Knattspyrnusambandi Íslands úr hendi Gylfa Orrasonar, fyrrverandi dómara en einnig haf Grindin bolta við vígslu hússins.

Fleiri myndir frá vígslu hússins má sjá í myndasafni vf.is. VF-myndir/pket.