Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 26. desember 2003 kl. 18:15

Fjölmörg umferðaróhöpp um jólin á Suðurnesjum

Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar í Keflavík frá því skömmu fyrir miðnætti á aðfangadagskvöld og þar til um miðjan dag á jóladag. Laust fyrir 23 á aðfangadagskvöld var jeppabifreið ekið á ljósastaur. Tveir menn voru í bílnum og var ökumaðurinn, maður á miðjum aldri, fluttur á slysadeild.
Á fjórða tímanum á jólanótt valt fólksbifreið á Hafnavegi. Ökumaður, 18 ára piltur, var fluttur á sjúkrahús. Um áttaleitið á jóladagsmorgun fór svo bíll út af Reykjanesbrautinni en ökumaður slasaðist ekki.
Í kringum hádegi í gær fór jeppabifreið útaf Grindavíkurvegi og valt en ekki urðu slys á fólki. Klukkan 13.30 lenti fólksbifreið út af Garðvegi og ökumaður var fluttur á slysadeild en var ekki talin mikið slasaður en bifreiðin skemmdist mikið. Fjórum mínútum eftir þetta rákust saman fólksbíll og sendibíll á Reykjanesbraut austan við Vogaveg en engin slys urðu á farþegum en bílarnir lentu utan vegar og skemmdust töluvert.
Bílakjarninn
Bílakjarninn