Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjölmiðlar búnir að fá nóg af hátíðahöldum?
Miðvikudagur 23. ágúst 2006 kl. 15:19

Fjölmiðlar búnir að fá nóg af hátíðahöldum?

Ákveðið hefur verið að fella niður blaðamannafund Ljósanæturnefndar sem fara átti fram um borð í hvalaskoðunarskipinu Moby Dick. Fáir fjölmiðlar sýndu fundinum áhuga og því ákveðið að fella hann niður.

Lítill áhugi virðist vera hjá fjölmiðlum landsins fyrir Ljósanótt í Reykjanesbæ ef marka má viðbrögð þeirra við blaðamannafundinum. Þeir fjölmiðlar sem áhuga hafa að fá upplýsingar um Ljósanótt geta haft samband við Ásmund Friðriksson í síma 894 3900 eða Dagnýju Gísladóttur í síma 862 2208. Einnig má nálgst ýmsar upplýsingar um Ljósanótt á www.ljosanott.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024