Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fjölmennur fundur sjómanna í Grindavík
Föstudagur 20. janúar 2017 kl. 09:29

Fjölmennur fundur sjómanna í Grindavík

Fjölmennasti fundur í sögu Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur var haldinn í gær á Sjómannastofunni Vör. Á fundinum var farið yfir stöðuna í kjaradeilu sjómanna.

Á vef félagsins segir að mikil samstaða hafi komið fram meðal félagsmanna sem gáfu samningsnefnd óskorað umboð til að hvika hvergi frá í kröfum. Þeim skilaboðum var komið á framfæri til félagsmanna að fjölmenna við Karphúsið næsta mánudag til að fylgja eftir þeim einhug sem ríkti á fundinum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024