Fjölmenni við útför í Njarðvíkurkirkju

Jakob kvæntist Önnu Lilju Þorvaldsdóttur frá Vatnsenda í Héðinsfirði f. 3.9. 1931, 29.12. 1960. Foreldrar Önnu voru Ólína Einarsdóttir f. 18.12. 1904, d. 22.11. 1976 og Þorvaldur Sigurðsson f. 27.4. 1899, d. 17.6. 1981. Dætur þeirra eru 1) Ólína Margrét Haraldsdóttir fósturdóttir f. 3.10. 1958, foreldrar: Alma Birgisdóttir f. 26. 5. 1939 og Haraldur Freyr Haraldsson f. 15.2. 1936, d. 1.8. 1999. Maki Hermann Borgar Guðjónsson f. 3. 8. 1958. Börn a) Jakob Hafsteinn f. 10.3. 1976, maki Laufey Bjarnadóttir f. 14.8. 1975. Börn aa) Ólína Erna f. 22.6. 1998 og María Bára f. 5.4. 1994. b) Anna Lilja f. 21.11. 1976, maki Vilhjálmur Sigurðsson, barn bb) Emilía Rún f. 28.2. 1997. 2) Snjólaug Kristín Jakobsdóttir f. 15.8. 1964, kjördóttir, foreldrar: Alma Birgisdóttir f. 26.5. 1939 og Eðvarð Vilmundarson f. 2.10. 1932. Maki Valdimar Örn Valsson f. 20. 7. 1961, börn a) Snædís Anna f. 23. 7. 1991, b) Valdís Lind f. 24.11. 1999, c) Margrét Birna f. 9.4. 1985.
Þegar Jakob hóf störf vann hann norður á Árskógsströnd við beitningar og til sjós. Hann fluttist til Innri-Njarðvíkur árið 1950 og bjó þar alla tíð síðan. Hann vann í Hraðfrystihúsi Innri-Njarðvíkur fyrstu árin, varð síðan húsvörður í Krossinum í Njarðvík sem þá var íþróttahús. Vann síðan á sprautuverkstæði Brynleifs Jóhannessonar og Karls Sigtryggsonar og síðan á sprautuverkstæði Steinars Ragnarssonar. Að lokum vann hann við Grunnskóla Njarðvíkur sem gangavörður þar til hann lét af störfum. Jakob söng í mörg ár með kirkjukór Innri-Njarðvíkur ásamt því að sitja í sóknarnefnd.