Bygg
Bygg

Fréttir

Fjölmenni á íbúafundi í Innri-Njarðvík
Mánudagur 28. apríl 2003 kl. 20:42

Fjölmenni á íbúafundi í Innri-Njarðvík

Fjölmenni var saman komið í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík í kvöld en Árni Sigfússon var þar með sinn fyrsta íbúafund í Reykjanesbæ. Á fundinum talaði hann m.a. helstu verkefni í bænum á sviði umhverfismála, gatnaframkvæmda, skólamála, félagsþjónustu, ferðaþjónustu, menningar, íþrótta og tómstunda og kom hann öllum þessum málum skilmerkilega frá sér með myndum af skjávarpa.Fleiri fundir verða í vikunni en til að auðvelda íbúum aðsókn og umfjöllun um næsta nágrenni er fundarstöðum og tíma skipt á eftirfarandi hátt:
Íbúar í Njarðvík - þriðjudaginn 29. apríl í Njarðvíkurskóla
Íbúar í Höfnum - miðvikudaginn 30. apríl í Sædýrasafninu
Íbúar í Keflavík - sunnan Aðalgötu - mánudaginn 5. maí í Holtaskóla
Íbúar í Keflavík - norðan Aðalgötu - miðvikudaginn 7. maí í Heiðarskóla

Allir fundirnir hefjast kl. 20.00
Bílakjarninn
Bílakjarninn