Fjölmargir möguleikar í tengslum við evrópskt samstarf
Fulltrúar frá öllum samstarfsáætlunum og þjónustuskrifstofum Evrópusambandsins á Íslandi, munu kynna möguleika okkar Íslendinga á evrópsku samstarfi í dag kl. 13-16, á Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar í Kjarna.
Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins á sviði rannsókna-, mennta-, menningar- og æskulýðsmála en umsjón þessarra mála eru í höndum ólíkra aðila.
Fundurinn er öllum opinn. Það verður kaffi á könnunni og möguleikar á einkafundum með starfsfólki skrifstofanna eftir kl.14. Starfsfólk skrifstofunnar mun síðan aðstoða við leit að samstarfsaðilum og undirbúning umsókna.
Nánari upplýsingar um aðrar áætlanir/þjónustuskrifstofur má finna á www.evropusamvinna.is/isnet eða hjá Helgu Sigrúnu á Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar í síma 421-6700