Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjölgun íþróttatíma í grunnskólum Reykjanesbæjar til skoðunar hjá lýðheilsuráði
Mánudagur 6. september 2021 kl. 07:12

Fjölgun íþróttatíma í grunnskólum Reykjanesbæjar til skoðunar hjá lýðheilsuráði

Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar hefur falið lýðheilsufulltrúa að vinna drög að fýsileikakönnun um aukna hreyfingu barna í grunnskólum Reykjanesbæjar, s.s. fjölgun íþróttatíma eða markvissri hreyfingu í byrjun skóladags.

Rannsóknir sýna að aukin hreyfing barna í grunnskólum hefur m.a. áhrif á líðan þeirra og námsárangur til góðs.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Um áratugaskeið hefur fjöldi tíma í íþróttum og sundi barna verið sá sami þrátt fyrir vísbendingar um aukna kyrrsetu barna. Niðurstöður úr rannsóknum sýna að aukin kyrrseta byrjar yfirleitt við sjö ára aldur en við fimmtán ára aldur nær kyrrseta yfir ¾ af þeim tíma sem börn eru vakandi. Ráðlagt er að öll börn stundi miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu í minnst sextíu mínútur daglega. Heildar tímanum má skipta í styttri tímabil, t.d. tíu til fimmtán mínútur í senn samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis.

Fýsileikakönnunin skal unnin í samráði við íþrótta- og tómstundafulltrúa og fræðslusvið.

Eftirfarandi þættir skulu kannaðir:

1. Vilji barna til aukinnar hreyfingar í skólum og hugmyndir þeirra þar um.

2. Mögulegar útfærslur á aukinni hreyfingu barna og kostnaður við slíkar breytingar í grunnskólum Reykjanesbæjar.

3. Samantekt á útfærslum og rannsóknum sem gerðar hafa verið á Íslandi og nágrannalöndum er varðar verkefni er snúa að aukinni hreyfingu barna í grunnskólum.