Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 21. febrúar 2000 kl. 10:44

Fjölgun íbúa í Miðhúsum, Sandgerði

Sandgerðibær hefur ákveðið að hefja byggingu á alls 16 íbúðum fyrir eldri bæjarbúa og ungt fólk, í samvinnu við Búmenn og aðra verktaka. Búmenn hafa þegar fengið lánsloforð, hjá íbúðalánasjóði til að hefja byggingu átta íbúða í Sandgerði. Framkvæmdir munu hefjast nú á árinu ef áhugi reynist vera fyrir hendi. Um er að ræða búseturéttaríbúðir, þar sem félagsmenn kaupa10-30% eignarhlut. Lán sem fylgja íbúðunum eru til 50 ára og vextir eru væntanlega 3-4%. Kaupendur búseturéttar eiga svo rétt á vaxtabótum. Þeir sem eru orðnir 50 ára geta orðið félagar og þátttakendur í frekari uppbyggingu í Miðhúsum. Sandgerðisbær hyggst jafnframt auglýsa eftir verktökum sem vilja taka að sér að byggja litlar íbúðir fyrir ungt fólk. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði 75-100 fermetrar að stærð og geri ráð fyrir möguleika á byggingu bílskýla fyrir hverja íbúð. Bæjarráð mun stuðla að því að væntanlegum kaupendum íbúðanna verði veitt viðbótarlán í þeim tilgangi að auðvelda fólki að festa kaup á eigin húsnæði.
Bílakjarninn
Bílakjarninn