Fjölgun fíkniefnabrota
Fíkniefnabrotum fjölgaði verulega í umdæmi Suðurnesjalögreglu í desember milli ára. Alls komu 19 fíkniefnamál inn á borð lögreglunnar í desember síðastliðnum samanborið við 9 mál í desember á síðasta ári.
Hegningarlagabrotum fækkaði hins vegar um 36% milli ára í umdæminu. Voru 60 í desember síðastliðnum en 94 í sama mánuði 2008. Umferðarlagabrot voru 66 og hafði fækkað úr 251 árið áður. Þetta kemur fram í tölum frá Ríkislögreglustjóra.