Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í maí
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 15% í maí miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 143 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 165 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 16 % milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um rúm 7%.