HSS
HSS

Fréttir

Sunnudagur 24. febrúar 2002 kl. 00:45

Fjölflokkastuðningssveit Ólafs Thordersen

Það er óhætt að segja að Ólafur Thordersen frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ hafi sótt stuðning í 2. sætið í allar áttir. Hann bauð stuðningsmönnum sínum til fagnaðar í kvöld og þar mátti sjá menn úr öðrum flokkum en Samfylkingunni.Fremstur í flokki var Viktor B. Kjartansson, þinglýstur Sjálfstæðisflokknum. Einnig voru þeir Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson í hófi stuðningsmanna Ólafs, en þeir Hafsteinn og Gísli hafa hingað til verið orðaðir við Framsóknarflokkinn.
Þeir reyndu að verjast myndatökum í kvöld en Erlingur Hannesson gerði heiðarlega tilraun til að fá Viktor til að brosa framan í myndavélina. Hinir földu sig á bakvið rándýra leðurjakka.

Vitað er að a.m.k. Viktor kaus í prófkjörinu í dag og vakti það athygli á kjörstað.
Bílakjarninn
Bílakjarninn