Fjöldi leikskólabarna sótti sýningu byggðasafnsins
Alls sóttu 12.794 sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar "Á milli tveggja heima" í Gryfjunni í Duushúsum sem opnuð var í tilefni af 25 ára afmæli safnsins 11. júní 2004. Fjöldi leikskólabarna sótti jafnframt sýninguna eða 184 en sérstakur viðbúnaður var í húsunum vegna komu þeirra á aðventu. Þetta kemur fram í Ársskýrslu Byggðasafns Reykjanesbæjar árið 2004.
Stekkjarkot var opið frá 1. júní til 31. ágúst og var fjöldi gesta alls 428. Hús Byggðasafnsins í Innri Njarðvík var opið um Frístundahelgina og eftir samkomulagi en fjöldi gesta var 20.
Skráning:
Alls voru skráðir 30 gripir í safnið á árinu, en lokið var við skráningu safnauka ársins 2003 sem voru samtals 426 færslur. Þá voru samtals 913 færslur skráðar úr fórum safnsins þ.e. óskáður safnkostur frá eldri tíð auk þess sem 4.392 gripir voru staðsettir, að stórum hluta vegna pökkunar safnsins í Vatnsnesi.
Lokið var við skráningu og frágangi 13.400 ljósmynda og eru þá 25.723 myndir skráðar á safninu. Lokið var skráningu á flokkuðum myndum og vinna hófst við skráningu óflokkaðra mynda.
Haldið var áfram með fornleifaskráningu í bæjarlandinu og var lokið við að skrá fornleifar í landi Innri Njarðvíkur samtals 48 minjastaðir með 60 fornleifum
Heildarvelta safnsins samkvæmt fjárhagsáætlun var 13.418.000. Styrkir fengust frá eftirtöldum aðilum:
Safnaráð samtals 1.800.000, þar af rekstrarstyrkur kr. 1.500.000, verkefnastyrkur kr. 300.000
Eignarhaldsfélag Brunabótafélagsins kr. 300.000 vegna skráningu ljósmynda.
Þá ákvað Iðnaðarmannafélag Suðurnesja að styrkja Byggðasafnið um kr. 3.000.000 í tilefni 70 ára afmælis félagsins en samstarfssamningur um kynningu á sögu iðnaðarmanna á svæðinu var gerður við félagið.Samstarfsverkefni
Þátttöku í verkefninu Destination Viking var haldið áfram og er það í höndum forstöðumanns og Gunnars Marels Eggertssonar skipstjóra Íslendings. Í tengslum við verkefnið var farið í vinnuferð til Grænlands og sóttur fundur í Búðardal.
Endurskoðun á stofnskrá safnsins var samþykkt í bæjarstjórn 19. október sl. þar sem tekið er til miðlunar og rannsóknarstefnu safnsins auk reglna um útlán safngripa, segir á vef Reykjanesbæjar.
Forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar er Sigrún Ásta Jónsdóttir.
Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar, www.rnb.is