HSS
HSS

Fréttir

Fjöldi fólks mætti í kólesterólmælingu
Laugardagur 11. september 2004 kl. 20:51

Fjöldi fólks mætti í kólesterólmælingu

Mikið annríki var á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í morgun þar sem boðið var upp á kólesterólmælingu endurgjaldslaust. Biðstofan á HSS var þéttsetin þegar ljósmyndara VF bar að garði, en gestum var boðið upp á safa og ávexti á meðan beðið var.

Fjöldi fólks var þegar mættur kl. 10 þegar farið var að mæla með nýjum mælum, CardioChek, sem hafa reynst mjög vel, m.a. í Bandaríkjunum. Að mælingunum loknum færði lyfjafyrirtækið AstraZeneca Heilbrigðisstofnuninni CardioChek-mæli að gjöf.

Ekki þarf að fjölyrða um það hversu mikilvægt er að fylgjast vel með blóðfitu (kólesteróli) því fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að lækkun blóðfitumagns er mikilvægur þáttur í baráttunni við æða- og hjartasjúkdóma.

Mælingarnar voru skipulagðar af Félagi hjartasjúklinga á Suðurnesjum og Landssamtökum hjartasjúklinga í samvinnu við HSS og AstraZeneca.

VF-mynd/Þorgils Jónsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn