Fjölda gæludýra bjargað úr eldsvoða
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom í veg fyrir að illa færi þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Tjarnargötu í Reykjanesbæ um kl. 9 í gærmorgun.
Bruna- og öryggiskerfi hússins sendi brunaboð til stjórnstöðvar Securitas sem gerði Slökkviliði BS viðvart. Þegar slökkvilið kom á staðinn voru húsráðendur að heiman en megna brunalykt var að finna á staðnum þó enginn eldur væri sjáanlegur.
Tveir reykkafarar með sérstaka hitamyndavél voru strax sendir inn til nánari skoðunar. Fljótlega kom í ljós töluverður hiti í kjallara hússins, í herbergi innaf bílskúrnum logaði eldur sem var á mörkum þess að berast á milli hæða um rafmagnslögn. Reykkafarar fundu að auki nokkuð af heimilisdýrum m.a. dísarfuglum, Afríkufugl, 3 ketti og hund og tókst að bjarga þeim.
Nokkrar sótskemmdir eru í kjallara hússins, en íbúðin er að mestu óskemmd. Eldsupptök eru talin vera út frá rafmagni, en rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík fer með rannsókn málsins.
Að sögn Sigmundar Eyþórssonar, Slökkviliðsstjóra, eru sterkar líkur á að illa hefði farið ef húsið hefði verið án brunaviðvörunarkerfis beintengdu í stjórnstöð, sem eins og áður sagði gerði slökkviliði BS viðvart.
Annars var gærdagurinn nokkuð annasamur hjá BS þar sem þeir fóru í 6 sjúkraflutninga vegna misalvarlegra atvika, m.a. vegna manns sem festi fót sinn í farangursbandi á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann var fluttur á HSS en reyndist ekki alvarlega meiddur.
Um hádegisbil var svo annað brunaútkall þegar eldur hljóp í feiti við matseld á veitingahúsinu Ránni á Hafnargötu. Eldurinn var slökktur fljótt, en töluverður reykur hlaust af. Tjón var óverulegt.
VF-Mynd/Þorgils