Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjölbreyttir námsmöguleikar kynntir í Virkjun á laugardaginn
Þriðjudagur 13. janúar 2009 kl. 15:22

Fjölbreyttir námsmöguleikar kynntir í Virkjun á laugardaginn

 
Nám er farseðill þinn inn í framtíðina og ferðamöguleikar þínir eru nánast óteljandi, segir í sameiginlegri auglýsingu frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs sem birtist í Víkurfréttum í síðustu viku. Þessar þrjár stofnanir efna til mikillar kynningar á starfsemi sinni í Virkjun mannauðs á Reykjanesi sem staðsett er í byggingu 740 við Flugvallarbraut á Vallarheiði. Kynningin verður nk. laugardag og stendur frá kl. 13:00 til 16:00. Þessar þrjár menntastofnanir á Suðurnesjum bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir þar sem allir ættu að geta fundið sér nám við hæfi.
 
Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína í síðustu viku. Virkjun er eins og áður segir til húsa í byggingu 740 á Vallarheiði en þar er verið að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá verður Virkjun ekki síður samkomustaður fólks sem vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi er í ný tækifæri á atvinnumarkaði með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig verður í boði í Virkjun.
 
1500 fermetra húsnæði
 
Sveitarfélögin á Reykjanesi, Vinnumálastofnun, verkalýðsfélög og fyrirtæki, menntastofnanir eins og Keilir, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman og bjóða upp á fjölbreytt nám fyrir þá sem leita nýrra tækifæra. Miðstöð verkefnisins verður í VIRKJUN, rúmlega 1.500 fermetra húsnæði sem Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, KADECO, hefur lagt til fyrir starfsemina. 


 
Hlýjar móttökur og skipulögð starfssemi
 
Áhersla er lögð á hlýjar móttökur og skipulagða starfssemi, þar sem litið verði á erfiða stöðu  sem tækifæri . Leitað verður eftir vinnuframlagi frá þeim stofnunum sem að verkefninu standa en ekki síður sjálboðliðastarfi. Almenningi er boðið að heimsækja Virkjun á daginn og fá þar fjölbreytilega þjónustu; sálfræðiaðstoð, fjármálaráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf o.s.frv.  Vinnuaðstaða fyrir ýmiskonar frumkvöðlastarfsemi og aðstoð við stofnun sprotafyrirtækja, aðstaða fyrir námstengd verkefni, fyrirlestrar, kynningar, persónuleg ráðgjöf og tómstundaverkefni, þátttakendum að kostnaðarlausu.
 
Í boði verður léttur hádegisverður og dagskrá alla daga þannig að hver og einn á að geta fundið verkefni við hæfi.  Samhliða persónulegri ráðgjöf eiga „viðskiptavinir“ Virkjunar að geta sótt fyrirlestra, íþróttaæfingar, sótt um vinnu, stofnað fyrirtæki o.s.frv.
 
Fyrir fleiri en atvinnulausa
 
Kappkostað verður að hafa ekki einungis starfssemi fyrir atvinnulausa á svæðinu heldur mun þar einnig fara fram önnur starfssemi, s.s. kennsla á vegum Keilis, Fjölbrautaskólans og Miðstöðvar símenntunar, nýsprotastarfssemi, lærdómsaðstaða fyrir nemendur o.s.frv.
 
Verkefnið er nýmæli til að takast á við atvinnuleysi og má líta á það sem tækifæri til sjálfseflingar, menntunar og að gera einstaklinginn hæfari til frekari þátttöku í atvinnulífinu þegar ný tækifæri skapst á vinnumarkaði.
 
Verkefnastjórar Virkjunar eru Ásmundur Friðriksson og Ása Eyjólfsdóttir ásamt Páli Rúnari Pálssyni sem atvinnulaus en leggur Virkjun til starfskrafta sína.


Mynd: Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennsi, Hjámar Árnason forstöðumaður hjá Keili, Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannaféalgs Suðurnesja og séra Björn Sveinn Björnsson, sóknarprestur að Útskálum kynntu sér starfsemi Virkjunar í gærdag, þegar blaðamaður var þar á ferð.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024