FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Á DEGI SÍMENNTUNAR
Dagur Símenntunar um allt land er nk. laugardag 28. ágúst. Af því tilefni verður lifandi dagskrá á Suðurnesjum sem hefst á laugardagsmorgun með fjarfundi. Jon Vinsböl frá Dansk Industri talar um MUs-þarfagreiningaverkefnið „markviss uppbygging starfsmanna“ kl. 10.40 í Kjarna.Vegleg dagskrá verður síðan frá kl.13 til 16 í Kjarna, í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Tölvuskóla Suðurnesja, í Grindavík, Sandgerði, Svartsengi og í ráðstefnusal nýja baðstaðar Bláa lónsins.