Fjögur handtekin vegna fíkniefnaaksturs
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum handtekið fjóra ökumenn, þrjár konur og einn karlmann, sem óku undir áhrifum fíkniefna. Þrjú þeirra höfðu áður verið svipt ökuréttindum.
Þá stöðvaði lögregla bifreið, þar sem grunur lék á að farþegi í henni væri í neyslu fíkniefna. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar framvísaði hann kannabisefnum í söluumbúðum.
Enn fremur handtók lögreglan konu vegna gruns um ölvun við akstur og kvaðst hún hafa drukkið nokkra bjóra að morgni dags. Loks var karlmaður handtekinn og færður á lögreglustöð, grunaður um ölvunarakstur