Bygg
Bygg

Fréttir

„Fjármálaráðherra áformar að rústa ferðaþjónustu“
Þriðjudagur 14. ágúst 2012 kl. 14:07

„Fjármálaráðherra áformar að rústa ferðaþjónustu“

Steinþór Jónsson formaður gistináttanefndar Samtaka ferðaþjónustunnar segir hækkun á virðisauka vera fráleita.

Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra gerði í gær grein fyrir hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu á Íslandi, en hækkunin hefur vakið hörð viðbrögð hjá aðilum í ferðaþjónustu og segir Steinþór Jónsson formaður gistináttanefndar Samtaka ferðaþjónustunnar hækkunina vera fráleita. „Fjármálaráðherra okkar Suðurnesjamanna áformar að rústa ferðaþjónustu á svæðinu með nýju heimsmeti á virðisaukaskatti,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir.

Gert er ráð fyrir hækkuninni í fjárlögum næsta árs, en samkvæmt Oddnýju á hækkunin að skila tveimur og hálfum milljarði til viðbótar í ríkissjóð. Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra, fundaði með Samtökum ferðaþjónustunnar í gær eins og fram kom í sjónvarpsfréttum en til umræðu á fundinum voru fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda úr 7 prósent í 25,5 prósent. Lokaákvarðanir verða þó ekki teknar fyrr en fjárlög verða afgreidd á Alþingi í haust.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Steinþór Jónsson er einn þeirra sem sat fundinn í gær og hann er hreint ekki sáttur við þessar fyrirætlanir. „Hugmynd og áform fjármálaráðherra, Oddnýju Harðardóttur, um að hækka virðisaukaskatt úr 7% og slá heimsmet með 25.5% virðisaukaskatti gerir mann bæði sáran og undrandi sérstaklega þar sem hún kemur frá okkar svæði,“ sagði Steinþór í samtali við VF. Suðurnesin eiga hvað mest undir að ferðaþjónustan blómstri að hans mati. Hann segir þessa hugmynd um hækkun vera bæði alltof háa og koma allt of seint, enda séu samningar og verðsrkár í ferðaþjónustu gefnar út með 18 til 20 mánaða fyrirvara. Öll hækkun skatta innan þess tímaramma komi því beint niður á gististöðum og að stóru leyti eftir það. Hann bendir á að í þessu samhengi hafi aðeins 3 af 33 löndum í Evrópu virðisaukaskatt á gistingu í efra þrepi og er meðaltal virðisaukaskatts nú um 10% í þessum löndum.

„Það er ljóst að ef hótel- og gististaðaeigandur hefðu talið sig geta hækkað verðin síðustu ár hefðu þeir gert það því afkomutölur greinarinnar eru því miður ekki góðar. Fjölgun ferðamanna gaf þó von um að afkoman gæti farið batnandi en sá draumur virðist nú þegar vera úti. Nú á að slátra Gullgæsinni og draga úr ferðamannastraum til Íslands,“ segir Steinþór.

„Rök Oddnýjar að ferðaþjónustan hafi hingað til fengið afslátt eða ívilnun er bein mótsögn við hana sjálfa sem segir samhliða að skatturinn verði borinn uppi af erlendum ferðamönnum. Það hljóta þá að vera þessir sömu erlendu aðilar sem fengu þessa svokölluðu ívilnun eða afslátt síðustu ár en ekki gististaðirnir.“ Hann segir það vera lámarkskröfu að ráðherra sem kemur með afgerandi tillögu og leiðir svona umræðu viti út á hvað hún gengur og hverjar afleiðingarnar kunna að verða.

Varðandi fundinn í gær segir Steinþór að hann hafi verið mjög erfiður enda hafi verið ljóst strax í inngangi Oddnýjar fjármálaráðherra að ákvörðun hefur verið tekin í þessu stóra máli og skýr rök fulltrúa ferðaþjónustunnar voru ekki til að breyta því. „Viðbrögð ráðherra þegar bent var á að stærsta einstaka sölusýning ferðaþjónustunnar, Vestnorden, þar sem yfir 300 ferðkaupaheildsalar mæta til að ganga frá verðsamningum fyrir árið 2014 yrði hugsanlega felld niður, enda engin viðræðugrundvöllur á meðan þessi pólitíska óvissa ríkir á Ísland, komu sérstaklega á óvart en þau voru einfaldlega „Þið verðið að gera það sem þið teljið best fyrir ykkar hagsmuni,” og sýna ekki mikinn skilning á þessari atvinnugrein,“ segir Steinþór.

Hann segir svarta atvinnustarfsemi í gistiþjónustu nú þegar orðið alvarlegt vandamál og hvaða hækkun á sköttum sem er, svo ekki sé talað um þessa gríðarlegu hækkun, er vatn á myllu þeirra sem hana stunda.
Hann segir það sorglegt í sjálfu sér að einu hugmyndir ríkisstjórnarinnar skuli vera skattahækkanir. „Enn sorglegra er að ríkisstjórnin geti ekki kallað þær réttum nöfnum heldur afturkölluð ívilnun, hvað sem það á að þýða.“ Hann segir það skjóta skökku við að ráðherra frá Suðurnesjum, þar sem ferðaþjónustan er yngst og mestur uppgangur á sér stað, skuli hafa klárt frumkvæði að skattlagningu sem án alls vafa feli í sér fækkun ferðamanna og um leið fækki atvinnutækifærum, m.a. við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

„Flugþjónustan hér á svæðinu skapar vel á annað þúsund störf, ferðaþjónustan með Bláa Lónið í fararbroddi annað eins og nýráðningar í þessum geira haldið hæstu atvinnuleysisprósentu landsins neðar en annars væri. Sá mikli fjöldi sem nú í sumar gat loks yfirgefið atvinnusleysið í von um framtíðarstörf er nú aftur komin á byrjunarreit. Suðurnesin hafa ennþá hlutfallslega flesta á atvinnuleysisskrá og hlutfallslega langflesta starfandi við ferðaþjónustu á landinu og þetta eru hugmyndir ráðherra Suðurnesjamanna,“ sagði Steinþór að lokum.