Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjármagn verði nýtt til uppbyggingar innviða við flugvöll
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar vill að fjármagn af sölu fasteigna verði nýtt til uppbyggingar innviða á flugvallarsvæði.
Fimmtudagur 3. mars 2016 kl. 06:00

Fjármagn verði nýtt til uppbyggingar innviða við flugvöll

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar telur mikilvægt að sameiginleg heildarsýn fyrir skipulag, uppbyggingu og þróun í nágrenni við Flugstöð Leifs Eiríkssonar verði mótuð hið fyrsta og verkefnum forgangsraðað. Þetta er meðal þess sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar á þriðjudag. Þá telur bæjarstjórn Sandgerðis að hagsmunum sveitarfélaganna og flugvallarsvæðisins sé best borgið með samvinnu sveitarfélaganna þriggja í nágrenni við flugstöðina, það er Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar, auk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar (Kadeco), Isavia og Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Þá vilja bæjaryfirvöld í Sandgerði að samkomulag í anda þess sem gert var árið 2010 verði gert um þetta viðamikla verkefni sem framundan er í uppbyggingu svæðisins. Sandgerðisbær vill að sveitarfélögin beiti sér fyrir því að ríkisvaldið veiti fjármagni sem fæst af sölu fasteigna á fyrrum varnarsvæði til uppbyggingarinnar í kringum alþjóðaflugvöllinn á Miðnesheiði. 
 
Í tilkynningu frá Sandgerðisbæ kemur fram að þessi mál hafi verið til umræðu innan sveitarfélagsins og milli sveitarfélaganna, Isavia og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar í ljósi þeirrar miklu uppbyggingar sem framundan er í nágrenni við flugvallarsvæðið vegna mikillar aukningar flugumferðar og sívaxandi fjölda flugfarþega. „Isavia hefur þegar kynnt þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar sem tekur á skipulagssvæði flugvallarins og hefur verið gott samráð við Sandgerðisbæ um gerð hennar. Þróunaráætlunina má nýta sem tæki til frekari stefnumótunar við uppbyggingu á svæðinu. Ljóst er sveitarfélögin á svæðinu og aðilar sem að uppbyggingunni munu koma eiga mikið verkefni fyrir höndum. Mikilvægt er að vel takist til við samræmingu og heildaruppbyggingu þessa mikilvæga svæðis sem alþjóðaflugvöllurinn og umhverfi hans er,“ kemur fram í tilkynningunni.
 
Sandgerðisbær vill að sveitarfélögin beiti sér fyrir því að ríkisvaldið veiti fjármagni sem fæst af sölu fasteigna á fyrrum varnarsvæði til uppbyggingarinnar í kringum alþjóðaflugvöllinn á Miðnesheiði. 
 
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024