Bako
Bako

Fréttir

Fjarlægja jólatré í Sandgerði
Sandgerðingar geta losað sig við jólatré frá jólahátíðinni út að lóðarmörkum fyrir þriðjudaginn. Mynd úr safni.
Laugardagur 5. janúar 2013 kl. 13:16

Fjarlægja jólatré í Sandgerði

Starfsmenn áhaldahúss Sandgerðisbæjar munu fara um Sandgerði nk. þriðjudag, 8. janúar, og fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðamörk í bænum.

Íbúar eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu og ganga vel frá trjám á aðgengilegum stöðum við lóðamörk.

Athygli er vakin á því að starfsmenn áhaldahúss fjarlægja ekki skoteldaleifar og eru íbúar hvattir til að fjarlægja sjálfir slíkar leifar sem fyrst.
 

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025