Bygg
Bygg

Fréttir

Fjárhús skemmdist á Vatnsleysuströnd – annríki hjá hjálparsveitum
Mánudagur 31. desember 2007 kl. 01:39

Fjárhús skemmdist á Vatnsleysuströnd – annríki hjá hjálparsveitum

Björgunarsveitarmenn á Suðurnesjum höfðu í nógu að snúast í óveðrinu í gær. Útköll á Suðurnesjum voru upp á nokkra tugi og misjöfn að stærð.

Töluvert tjón varð á Vatnsleysuströnd þegar fjárhús skemmdist í veðurofasnum. Björgunarsveitin Skyggnir í Vogum þurfti þar að fergja járn sem var að fjúka.

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði þurfti að fergja klæðningu sem fauk utan af húsi í gær. Þá þurfti Slökkvilið Sandgerðis að dæla vatni burt af bílastæði við björgunarstöðina í Sandgerði en þar var asahláka eins og víðast hvar annarsstaðar.

Björgunarsveitarmenn í Grindavík höfðu í nógu að snúast við að hefta fok og sömu sögu er að segja úr Garðinum.

Þegar veðrið tók að róast á Suðurnesjum fóru hins vegar að berast hjálparbeiðnir frá höfuðborgarsvæðinu og sendu björgunarsveitir af Suðurnesjum bæði búnað og mannskap til höfuðborgarinnar. Þar voru verkefnin aðallega fólgin í eignabjörgun vegna vatnsflóða.

 

Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn