Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Fjárhagslegur stuðningur við Ljósanótt
Hallur Geir Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó, Jóhann Snorri Sigurbergsson forstöðumaður viðskiptaþróunar HS Orku, Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í fremstu röð. Á bakvið þau standa fulltrúar úr
Miðvikudagur 26. ágúst 2015 kl. 09:50

Fjárhagslegur stuðningur við Ljósanótt

- Reykjanesbær undirritar samninga við helstu styrktaraðila Ljósanætur

„Það þarf fólk eins og þig“ söng Rúnar Júlíusson í vinsælu lagi og segja má að þessi lína gæti verið einkennislína Ljósanætur árið 2015. Ljósanótt er ein af stærri bæjarhátíðum landsins og fer nú fram í 16. sinn dagana 2.-6. september nk.

Í sumar var sent út bréf til fjölda fyrirtækja á svæðinu og leitað eftir fjárhagslegum stuðningi við framkvæmd hátíðarinnar og í vikunni skrifaði bæjarstjórinn Kjartan Már Kjartansson undir samninga við þrjá stærstu styrktaraðilana sem eru Landsbankinn sem er helsti styrktaraðili Ljósanætur, Nettó sem styrkir vel dagskrá föstudagsins og barnadagskránna og HS Orka sem lýsir upp Ljósanótt með því að fjármagna flugeldasýninguna.  

Bæjarstjóri þakkaði fulltrúum þessara þriggja fyrirtækja sitt framlag og jafnframt hvatti hann þau fyrirtæki sem enn hafa ekki svarað bréfinu, að senda nú inn sem fyrst, jákvæð svör og taka þannig þátt í að halda Ljósanótt sem einni bestu menningar- og fjölskylduhátíð landsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024