HSS
HSS

Fréttir

Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar samþykkt
Fimmtudagur 13. desember 2012 kl. 14:05

Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar samþykkt

„Fjárhagsáætlun áranna 2013 - 2016 er unnin sameiginlega af öllum framboðum í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar líkt og áætlanir síðustu ára. Bæjarfulltrúar hafa verið samhentir í því verkefni að ná tökum á skuldavanda Sandgerðisbæjar og að auka hagkvæmni í rekstri um leið og staðinn hefur verið vörður um grunnþjónustu sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar vilja koma á framfæri þakklæti til bæjarstjóra sem og annarra starfsmanna bæjarfélagsins fyrir mikla og góða vinnu í tengslum við fjárhagsáætlunargerðina. Bættur rekstur er ekki síst að þakka öflugu liði starfsmanna Sandgerðisbæjar“, segir í bókun bæjarstjórnar Sandgerðis við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2013 til 2016.

Fjárhagsáætlunin var lögð fram til seinni umræðu og afgreidd á bæjarstjórnarfundi í gær, miðvikudaginn 12. desember. Fyrri umræða um fjárhagsáætlunina fór fram á fundi bæjarstjórnar 31. október. Fjárhagsáætlunin var samþykkt samhljóða af bæjarstjórn.

Bæjarstjórn hefur sett sér markmið um að uppfylla fjárhagsleg viðmið fyrir sveitarfélög eins og þau koma fram í nýjum sveitarstjórnarlögum. Í ljósi þess var auk fjögurra ára fjárhagsáætlunar unnin langtímaáætlun sem nær til ársins 2025. Langtímaáætlunin sýnir að sveitarfélagið uppfyllir skilyrði sveitarstjórnarlaga um 150% skuldaviðmið árið 2023. Lögin kveða á um að skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af árlegum heildartekjum megi ekki fara yfir 150%. Þá er gert ráð fyrir að jafnvægi í rekstri náist árið 2016 en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal rekstrarniðurstaða sveitarfélaga á þriggja ára tímabili vera í jafnvægi.

Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að skatttekjur nemi 903 mkr. á árinu 2013 og að heildartekjur A- og B-hluta nemi 1.509 mkr. Niðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 163 mkr. en að teknu tilliti til fjármunatekna og fjármagnsgjalda er áætluð rekstrarniðurstaða neikvæð um 63 mkr. Stefnt er að jákvæðri rekstrarniðurstöðu árið 2015.

Megináherslur í fjárhagsáætluninni eru að veita íbúum góða grunnþjónustu, auka ekki þjónustugjöld umfram verðlagshækkanir en þau hækka að jafnaði um 5% um áramótin. Þá er gert ráð fyrir að halda fjárfestingum, viðhalds- og endurnýjunarverkefnum í lágmarki og engar fjárfestingar eru fyrirhugaðar á árinu 2013. Bæjarstjórn hefur markað þá stefnu að kaupa til baka grunnskólann, íþróttamiðstöðina og samkomuhúsið, sem leigð eru af Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Áætlað hefur verið að ljúka samningum um kaupin fyrir lok þessa árs en óvíst er hvort það gangi eftir.

Framlegð, þ.e. hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er áætluð um 20% á ári næstu fjögur árin. Framlegðin í A og B hluta hefur batnað frá því að vera neikvæð um 9,6% árið 2009 í það að vera jákvæð um 20% árið 2013.

Handbært fé í lok árs 2013 er áætlað 62 mkr. og tæplega 124 mkr. í lok árs 2016.

Fjögurra ára áætlun Sandgerðisbæjar sýnir að stefnt er í jákvæða átt, skuldir fara lækkandi og jafnvægi næst í rekstrinum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn