Fjarfunda í bæjarstjórn og nefndum Sveitarfélagsins Voga
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt samhljóða að heimilt verði að nota fjarfundabúnað á fundum bæjarstjórnar og fundum nefnda og ráða Sveitarfélagsins Voga.
Auk þess voru leiðbeiningar um framkvæmd fjarfunda samþykktar á síðasta bæjarstjórnarfundi í Vogum.
Einnig felur bæjarstjórn bæjarráði að útbúa reglur fyrir sveitarfélagið um heimild til fjarfunda.