Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fjárfestingarfrumvarp vegna álvers í Helguvík afgreitt úr nefnd
Laugardagur 4. apríl 2009 kl. 22:54

Fjárfestingarfrumvarp vegna álvers í Helguvík afgreitt úr nefnd

Frumvarp iðnaðarráðherra um fjárfestingarsamning við Norðurál – Century Aluminum Corporation vegna byggingar álvers í Helguvík hefur verið afgreitt úr nefnd. Vinstri grænir leggjast gegn frumvarpinu en þingmenn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í iðnaðarnefnd styðja það með fáeinum breytingum. Viðskiptablaðið greinir frá þessu á vb.is í dag.

 
Í frumvarpinu er iðnaðarráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands heimilað að gera samning við Norðurál Helguvík ehf. og eiganda þess, Century Aluminum Company, um að reisa álver í Helguvík á Reykjanesi.
 
Áformað er að byggja álverið í fjórum 90.000 tonna áföngum og að ársframleiðsla þess verði allt að 360.000 tonn.
 
Gert er ráð fyrir að álverið taki til starfa seinni hluta árs 2011 og að starfsmenn þess verði þá 210 en verði 540 þegar álverið er fullbyggt.
 
Nánar á vb.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024