Fiskvinnsla stöðvast en útgerð ekki hjá Vísi
Síldarvinnslan móðurfélag Útgerðarfyrirtækisins Vísis í Grindavík segir í tilkynningu sem það sendi í morgun að stjórnendur ynnu við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála. „Ljóst er að þróunin undanfarna sólarhringa hefur verið önnur og verri gagnvart byggð í Grindavík en þær sviðsmyndir gerðu ráð fyrir. Staða mála hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðar en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Þar segir einnig að Vísir ehf., dótturfélag Síldarvinnslunnar hf., sem er með starfsemi sína í Grindavík, hafi unnið að því að undirbúa og innleiða varnir og áætlanir til samræmis við þær sviðsmyndir sem almannavarnir og jarðvísindamenn höfðu sett fram í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi. Vörðuðu þær flestar áhrif tjóns á innviðum utan Grindavíkur, s.s. á raforkuver og hitaveitu.
Stjórnendur hafa yfirfarið stöðu félagsins út frá vátryggingarvernd og telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt í samræmi við lög vegna hugsanlegs tjóns af völdum jarðhræringanna. Starfsmenn og stjórnendur vinna að því að verja verðmæti sem bundin eru í hráefnis- og afurðabirgðum í samráði og samvinnu við yfirvöld.
Stjórnendur leggja áherslu á að hlúa að starfsfólki og halda sambandi við það,“ segir að lokum en Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. skrifar undir tilkynninguna.