HSS
HSS

Fréttir

Fisktækniskólinn: Nýr skóli á sviði sjávarútvegs
Föstudagur 7. september 2012 kl. 09:06

Fisktækniskólinn: Nýr skóli á sviði sjávarútvegs

Þann 20. Júlí síðastliðinn fékk Fisktækniskóli Íslands í Grindavík formlega viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem skóli á framhaldsskólastigi.
 
Skólinn er í eigu Sveitarfélaga, fræðsluaðila auk stéttarfélaga og fyrirtækja í sjávrútvegi á Suðurnesjum.

Fisktækniskólinn hefur verið í undirbúningi frá 2007 og hann er fyrsti framhaldsskólinn á landinu  sem hefur að markmiði að bjóða eingöngu upp á sérhæft nám á þessu skólstigi.   Skólinn hefur einnig verið öflugur á sviði endurmenntunar og boðið upp á fjölda starfstengdra námskeiða.  Markmið stofnenda er að auka veg og virðingu menntunar í sjávarútvegi ásamt því að auka framboð á starfstengdu námi.  

Námið er  tveggja ára vinnustaðatengt grunnnám á sviði veiða (sjómennsku),  vinnslu og fiskeldi samkvæmt viðurkenndri námsrká.  Námið hefur verið í þróun  síðastiliðn 3 ár í samstarfi við mörg öflugustu fyrirtæki í sjávarútvegi á landinu.

Námið er afar hagnýtt og ljúka nemendur m.a. réttindanámi til smáskipa, lyftara auk fjölmargra hagnýtra áfanga tengdum sjávarútvegi.   

Á grundvelli samnings um tilraunakennslu stunda nú 7 nemendur nám í skólanum á öðru ári, en áður hafa um 40 nemendur lokið skilgreindum hluta námsins í samstarfi við Vinnumálastofnun.  Sú tilraunakennsla hófst með 25 nemendum vorið 2010.  

Stefnt er að því að taka inn 12 nemendur á næstu vorönn og byrjað er að innrita fyrir haustið 2013.

Bílakjarninn
Bílakjarninn