HSS
HSS

Fréttir

Fisktækniskólinn fái 71 milljón árlega í 5 ár
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 13. apríl 2021 kl. 19:52

Fisktækniskólinn fái 71 milljón árlega í 5 ár

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst gera samning um fisktækninám og annað nám tengt því við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Áætlað er að árlegt framlag á grundvelli samningsins verði 71 milljón króna á ári. Stefnt er að því að samningurinn taki gildi 1. ágúst 2021.

Fisktækniskólinn menntar fólk til starfa við fiskveiðar, fiskvinnslu og fiskeldi. Kynning á þessari samningsgerð er nú í samráðsgátt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Það er afar ánægjulegt að menntamálaráðherra ætli sér að tryggja rekstur skólans og gera samning til næstu fimm ára. Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að mennta fólk til að sinna fjölbreyttum  störfum í sjávarútvegi.  Atvinnulífið þarf á vel menntuðu fólki að halda til að mæta áskorunum framtíðarinnar, þá kannski sérstaklega fólki úr starfs- og tækninámi ýmiss konar. Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í því samhengi,” segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingiskona Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.