Fisktækniskóli Íslands verði til jafns við aðra skóla
Bæjarráð Grindavíkur hvetur Alþingi og menntamálaráðherra til að veita Fisktækniskóla Íslands viðeigandi stöðu sem sérskóli á framhaldsskólastigi. Jafnramt að framlög til skólans verði eins og til annarra sambærilegra skóla á framhaldsskólastigi.
Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Grindavíkur nú í vikunni þar sem ársskýrsla og ársreikningur 2010 frá aðalfundi Fisktækniskóla Íslands 2011 voru til umfjöllunar.