Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fisktækniskóli Íslands hlýtur Nordplus Aurora menntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022
Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskóla Íslands
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 7. nóvember 2022 kl. 10:28

Fisktækniskóli Íslands hlýtur Nordplus Aurora menntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022

Fisktækniskóli Íslands hlaut Norplus Aurora menntaverðlaun Norðurlandaráðsverðlaunin 2022 en þau eru veitt því verkefni á sviði leik- grunn- og framhaldsskóla sem talið er hafa skarað fram úr á árinu. Verkefni Fisktækniskólans, sem hlýtur verðlaunin í ár, var til þriggja ára og hefur að markmiði að mynda samstarfsnet allra sérskóla á Norðulöndum á sviði veiða, vinnslu og fiskeldi.

Að sögn Ólafs Jóns Arnbjörnssonar, skólameistara Fisktækniskóla Íslands, þá hófst þessi vegferð fyrir rúmum 13 árum þegar skólinn fékk stuðning Vest-norrænu skrifstofunnar í Færeyjum (NORA) til að tengja saman skóla í Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og vestanverðum Noregi. „Við víkkuðum síðan út samstarfið hægt og rólega og eru nú alls níu skólar í samstarfsnetinu - og frá öllum Norðurlöndum og svæðum – nema reyndar Svíþjóð, „en við erum að vinna að því að bæta þeim við í næstu lotu,“ segir Ólafur.

„Það þarf vart að nefna hversu mikilvægt það var fyrir okkur sem voru að undirbúa stofnun skólans í Grindavík að hafa aðgang að reynslu nágranna okkar og ekki síður að fá aðgang að öllu því náms- og kennsluefni sem þessir skólar höfðu, sem var jú afar takmarkað hér þegar við vorum að fara af stað fyrir rúmum 12 árum. Við nutum sérstaklega góðs af þessu framan af og þá einkum á sviði fiskeldi. En síðustu árin höfum við geta stutt samstarfsaðila okkar á þeim sviðum sem við höfum haft yfirburði, svo sem á sviði vinnslu- og veiðarfæratækni. Þá höfum við notið góðs af því að nemendur okkar hafa fengið verklega þjálfun hjá vinaskólum okkar – við aðstæður og búnað sem við höfum ekki haft efni á að koma okkur upp.“  

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Norræna ráðherranefndin hefur í tvígang styrkt verkefnið undir þesari áætlun Nordplus. Fyrst ári 2016 en þessum hluta verkefnisins (2018-2022) lýkur formlega nú í desember. „Ég reikna fastlega með að við – hópurinn, komum til með að sækja um að nýju og hættum ekki fyrr en allir verknámsskólar á sviði veiða, vinnslu og fiskeldi á  Norðurlöndum verða komnir í samstarfsnetið.“        

Norðmenn standa afar vel að baki sinum þrettán fisktækniskólum – og hafa flestir skólarnir bæði skólaskip og veiðikvóta auk fyrirmyndar aðstöðu til verklegrar kennslu. „En þó svo skólarnir standi mis vel að vígi hvað þetta varðar, þá eigum við flestir  það sameiginlegt að vera frekar litlir sérskólar og oftast tengdir minni sjávarbyggðum. Faglega eigum við einnig mjög mikið sameiginlegt. Þetta er jú Norður Atlantshafið!     Þetta er sami fiskurinn, sömu veiðarfæri, vinnsluaðferðir og markaðir og eldið mjög svipað. Við glímum einnig við sömu vandamálin hvað varðar nýliðun og áhuga ungs fólks á námi og starfi innan bláa hagkerfisins. Við eigum, hvað þetta varðar, meira sameiginlegt innbyrðis og yfir landamærin, en með öðrum framhaldsskólum í heimalandinu. Með því að tengja skólana saman – „svona í toppnum“ hefur okkur tekist að tala sterkari röddu og hafa ótal „spinn-off“ verkefni farið af stað í skjóli samstarfsnetsins síðustu 10 árin.   

Við höfum tekið við ótal hópum nemenda og kennara frá samstarfsskólum okkar, en höfum svo einnig notið góðs af og sent okkar nemendur og kennari til þjálfunar í hinum löndunum – svo sem í frábærri aðstöðu til kennslu í fiskeldi í Noregi og siglingafræði og vélahermum í Noregi – svo fátt eitt sé nefnt. Aðstöðu sem við höfum ekki getað boðið okkar nemendum upp á,“ sagði skólastjórinn.

Ólafur tók á móti verðlaununum fyrir hönd skólanna og samstarfsnetsins í Stókhólmi þann 1. nóvember.