Fréttir

Fisher fer í gömlu sparifötin
Laugardagur 23. júlí 2016 kl. 07:00

Fisher fer í gömlu sparifötin

Miklar endurbætur í gangi á einu sögufrægasta húsi Reykjanesbæjar

Nú standa yfir miklar endurbætur á hinu sögufræga Fishershúsi við Hafnargötu. Húsið mun komast í upprunalega mynd að utan á næstu mánuðum en óvíst er hvert hlutverk þess verður og hvað verður það innanhúss.  Húsið byggði kaupmaðurinn Waldemar Christopher Hartvig Fischer og var húsið kennt við hann.

Grétar Guðlaugsson úr Reykjanesbæ fór af stað með verkefnið sem var lokaverkefni hans í byggingarfræði við Háskóla Íslands. Hann segir að mörgum hafi þótt tímabært að lappa upp á húsið og það ferli sé nú loks komið af stað. Grétar segir húsið í verra ástandi en hann hafði grunað. Bæði hvað varðar klæðningu utanhúss sem og innviði. Þó megi finna þar áhugaverða hluti eins og upprunalegu innréttinguna frá þeim tíma er Fisher sjálfur var þar með verslun. Það var í kringum 1881 þegar húsið var byggt. Það þótti glæsilegasta húsið á svæðinu og þótt víðar væri leitað.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Leitast verður eftir því að hafa klæðningu og lit í upprunalegu formi en grái liturinn fannst undir klæðningu sem var fjarlægð af húsinu í núverandi framkvæmdum. „Ef maður segir bara eins og er þá var þetta hús bara orðið lýti á svæðinu þarna,“ segir Grétar. Hann hafði vonast til þess að framhlið hússins væri klár um Ljósanótt en hann býst ekki við því að svo geti orðið. Nú sé lögð áhersla á klæðningu og burðarvirki en ekki verður farið í lagfæringar innanhús að svo stöddu. „Þetta er dýrt og tímafrekt þar sem allt er sérsmíðað,“ segir Grétar um þetta merkilega hús. Búið er að rífa Hf. húsnæðið gamla að hluta og til stendur að rífa niður húsnæði þar sem golfklúbburinn hafði aðstöðu. Þá mun Fishershús standa fremur berskjaldað og fær fyrir vikið að njóta sín mun betur.

Þegar húsið var byggt árið 1881 gerði Fisher ráð fyrir því að skrúðgarður risi í kringum það. Sjá má leifar af honum nú en í kringum hann var reistur veggur sem nú er friðaður og fær að halda sér.