Bygg
Bygg

Fréttir

„Fínt ef það verður verkfall í viku“
Föstudagur 17. september 2004 kl. 16:27

„Fínt ef það verður verkfall í viku“

„Það verður fínt ef það verður verkfall í svona viku. Ef það verður lengra þá gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir samræmdu prófin,“ sögðu fjórir strákar úr 10. bekkjum Holta- og Heiðarskóla. Ef fram fer sem horfir þurfa þeir ekki að mæta í skólann á mánudagsmorgun vegna boðaðs verkfalls grunnskólakennara.
Að sögn strákanna er tónninn ekki jákvæður í kennurum. „Þeir eru alls ekki jákvæðir og langflestir halda að það verði verkfall,“ segja þeir. En telja þeir að það verði verkfall? „Við erum nokkuð vissir um að við þurfum ekki að mæta í skólann á mánudagsmorgun. Við erum ekkert svo stressaðir, nema ef þetta verður mjög langt verkfall,“ sögðu strákarnir en þeir ætla að nota helgina í að „lana“ sem þýðir að þeir munu spila tölvuleiki á samtengdum tölvum.

Myndin: f.v. Hjálmtýr Birgisson, Jón Gunnar Jónsson, Jón Árni Benediktsson og Bjarni Freyr Rúnarsson. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn