Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtán ára unglingar úr Grindavík fengu að kynnast „bláa hagkerfinu“
Föstudagur 8. júlí 2022 kl. 10:30

Fimmtán ára unglingar úr Grindavík fengu að kynnast „bláa hagkerfinu“

Grindavíkurbær og Fisktækniskóli Íslands hafa undanfarin ár boðið fimmtán ára nemendum í Vinnuskóla Grindavíkurbæjar upp á viku nám í Auðlindaskólanum. Þar kynnast unglingarnir fjölbreyttum og verðmætum störfum sem tengjast „bláa hagkerfinu“ og er boðið í fjölbreyttar vettvangsferðir í Grindavík, á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.

Nemendur fá að kynnast sögu Grindavíkur, heimsækja sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík, Sjávarklasann í Reykjavík, Slysavarnarskólann í Sæbjörgu, Björgunarsveitina Þorbjörn, Codland Marine Collagen, Þróunarsetur Bláa lónsins, Þekkingarsetrið í Sandgerði svo eitthvað sé nefnt.

Meðfylgjandi myndir er fengnar af Facebook-síðu Fisktækniskólan. Eins og sjá má hafa krakkarnir skemmt sér hið besta en þau fengu m.a. að prófa flotgalla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024
Buslað í sjónum.

Páll Valur Björnsson með sýnikennslu í handflökun.
Margt áhugavert er að sjá í Þekkingarsetrinu í Suðurnesjabæ.
Setið á skólabekk í Fiskvinnsluskóla Íslands.